Hvað gerum við?
Soccer and Education USA er íslenskt ráðgjafarfyrirtæki sem aðstoðar knattspyrnufólk við að sameina háskólanám og íþróttir í Bandaríkjunum. Við styðjum viðskiptavini okkar í gegnum það flókna ferli sem fylgir því að hefja nám og keppni við bandaríska háskóla.
Fyrirtækið var stofnað í nóvember 2015 af tveimur fyrrverandi nemendum og íþróttamönnum við Clemson University. Frá ársbyrjun 2016 höfum við aðstoðað hátt í 200 knattspyrnumenn við að fá skólastyrk í Bandaríkjunum.
Markmið okkar er að finna skóla sem hentar hverjum og einum, bæði hvað varðar námslega getu og árangur í íþróttum. Við horfum einnig til staðsetningar, loftslags, stærðar skólans og námsframboðs. Okkur er mikið í mun að finna rétta skólann fyrir þig, innan vallar sem utan.

Þetta byrjar með samtali.
