Fréttir og sögur
Úrslitakeppni NCAA D1 kvenna í knattspyrnu 2022
Búið er að ákveða leikjatréð í úrslitakeppni NCAA D1 kvenna í knattspyrnu og nú tekur úrslitakeppnin við! Tíu íslenskar konur með átta ólíkum skólum komust í keppnina. Tveir leikir verða sérstaklega spennandi því þar mætast fimm þeirra innbyrðis.
Harvard, þar sem Áslaug Munda og Hildur Þóra leika, tekur á móti New Hampshire og Guðrúnu Haralz, sem stundar þar meistaranám.
Hinn leikurinn fer fram í Louisiana, þar sem LSU og Ída Hermansdóttir mæta Lamar University og Evu Karen.
Föstudagur 11. nóvember
LSU (Ída Hermansdóttir) gegn Lamar University (Eva Karen)
Arkansas gegn Missouri St. (Eydís Helgadóttir)
Laugardagur 12. nóvember
Georgetown gegn Hofstra (Dagný Rún og Þórhildur Þórhallsdóttir)
Arizona St. (Birta Guðlaugsdóttir) gegn Portland
South Carolina gegn Wake Forest (Kristín Erla)
Harvard (Áslaug Munda og Hildur Þóra) gegn New Hampshire (Guðrún Haralz)

