Sund
Hvernig fæ ég skólastyrk í sundi?
Skólastyrkur í sundi í Bandaríkjunum er einstakt tækifæri til að stunda nám við öflugan háskóla og keppa fyrir hönd hans á mótum víðs vegar um landið.
Flestir bandarískir sundmenn á framhaldsskólaaldri stefna að því að fá styrk við draumaskólann sinn og samkeppnin er hörð. Þar sem sund í háskólum snýst um stigakeppni liða leita þjálfarar gjarnan að hæfileikafólki utan Bandaríkjanna. Þar kemur þú til sögunnar!
Aðstaðan er mismunandi eftir skólum en liðsheildin og fólkið í kringum þig hjálpa þér að ná markmiðunum þínum.
SKÓLASTYRKIR

UMSÓKNIR
Fáðu frítt mat
Sundstyrkir geta greitt hluta eða allan kostnað við námið. Við leiðum þig í gegnum hvert skref, frá því að finna rétta háskólann til undirbúnings fyrir inntökupróf.
Úr þúsundum háskóla í Bandaríkjunum eru góðar líkur á að við finnum skóla sem hentar þér og býður þann fjárhagslega stuðning sem þú þarft. Hvort sem þú leggur meiri áherslu á námið eða sundið metur Hrafnhildur Lúthersdóttir, sundsérfræðingurinn okkar, möguleika þína sérstaklega.

Þetta byrjar með samtali.
